Verslanir
Verðlag á Tenerife og Kanaríeyjum er mjög hagstætt. Þar er enginn virðisaukaskattur, bara eins konar söluskattur sem er mismunandi eftir vöruflokkum. Almennur söluskattur á vörum er 7% en raftæki geta verið í kringum 3%. Það getur því verið sérstaklega hagkvæmt að kaupa raftæki á eyjunni, enda Tax Free alla daga! Gætið samt að því að þið gætuð þurft að borga virðisaukaskatt af vörum sem þið kaupið úti, þegar þið komið til Íslands.
Kortagreiðslur
Þegar greitt er með korti er oftast hægt að velja á posaskjánum hvort greitt er í evrum eða íslenskum krónum. Veljið alltaf evrur því annars getur reiknast hærra gengi og varan verður dýrari fyrir vikið. Passið líka að láta kortið aldrei úr augsýn, til að forðast kortasvindl. Það er líka mikilvægt að fá kvittun og bera hana saman við færslur á kortayfirlitinu ykkar.
Ameríska ströndin
Aðalverslunargatan á suðurhluta eyjarinnar er „Laugavegurinn” eða Avenida de Las Américas. Þar eru m.a. tískuverslanirnar Zara, Stradivarius og Bershka.
Hvar sem verslað er á eyjunni þá er fínt að versla föt á kvöldin því þá er auðveldara að máta föt. Verslanamiðstöðvar eru opnar langt fram á kvöld og flestar verslanir líka. Það er eitt sem þarf að varast og það er að kaupa aldrei raftæki nema í stærri verslunum, þar sem nokkuð er um vörusvik í smærri búðum.
Dótabúð
Fyrir yngri kynslóðina eru dótabúðir Juguetería La Casita. Þær eru á nokkrum stöðum á Amerísku ströndinni. Þar fæst LEGO, Playmobil, Hvolpasveitin-leikföng, Nerf, spil, Pokémon, Marvel, og margt fleira.
Safari
Í litlu verslunarmiðstöðinni Safari á móti Parque Santiago III eru úra- og skartgripaverslun, fataverslanir og skóverslanir. Margir hafa varað við því að kaupa tæki eins og síma, myndavélar og þess háttar í Safari, eftir að hafa lent í svikum. Þetta á við um fleiri smærri tækjasala, svo það borgar sig að kaupa dýrar vörur á viðurkenndum sölustöðum.
Við Parque Santiago IV er búð sem heitir Ale-Hop en þar er hægt að versla alls konar hluti; leikföng, kúta, ritföng, heimilisvörur og fleira. Ale-Hop er víðsvegar um eyjuna.
Parque Santiago 6 er lítil verslunarmiðstöð, rétt hjá golfvellinum Las Américas, um 5 mínútna akstur frá „Laugaveginum. ” Þar er Mercadona matvöruverslunin, Intersport, H&M og fleiri. Hér er listi yfir verslanir.
Við miðja Amerísku ströndina er íþróttavöruverslunin Sport Zone. Þar eru m.a. vörur fyrir hjólreiðar. Nálægt henni er Dive Shop, verslun með allt fyrir brimbretti. Hún er við hliðina á H10 hótelinu við Amerísku ströndina.
Costa Adeje

Siam Mall
Siam Mall opnaði 2015 og þar eru meira en 70 verslanir. Þar er að finna tískuverslanir eins og Stradivarius, Bershka, Zara, Timberland, Women’s secret, Mango, H&M og skóverslunina Zona Zero. Stórar stærðir eru m.a. í boði í H&M, Mango og Punt Roma. Það er mjög flott útileiksvæði fyrir börn á efstu hæðinni. Þarna er ýmis þjónusta og veitingastaðir, þar á meðal steikhús þar sem er hægt að fá mjög góða nautasteik.
Siam Mall er opin alla daga frá 10-10, 365 daga á ári, samkvæmt heimasíðu þeirra. Boðið er upp á ókeypis strætóferðir frá Los Cristianos, Las Américas og Costa Adeje. Það er um 10 mínútna akstur frá þessum svæðum að Siam Mall. Hér er listi yfir búðir í Siam Mall og þjónustu.
Plaza del Duque er meðal annars með þessar verslanir: Superdry, Mango, Desigual, Kids Corner (Lego, Disney) og Sunglass Hut.
X-Sur
X-Sur (hét áður Gran Sur) er mjög fín verslunarmiðstöð. Þar er matvöruverslunin Mercadona en þar er yfirleitt ódýrast að versla í matinn. Intersport, Stradivarius, Women’s Secret, Springfield, Perfumeria og margt fleira er í boði, bíó og barnagæsla. Hér er listi yfir verslanir og þjónustu í X-Sur. Hjá Movistar, Orange og Vodafone er hægt að kaupa símakort og netpung (þarf að framvísa vegabréfi við þannig kaup). Þarna er líka raftækjaverslun þar sem hægt er að láta laga síma.

Santa Cruz & La Laguna
Í höfuðborginni eru stórar verslanamiðstöðvar og meira úrval af verslunum en á ferðamannasvæðinu. Það tekur um 45 mínútur að aka á milli, frá ferðamannasvæðinu. Ef þið farið á bílaleigubíl borgar sig að hafa GPS tæki því það getur verið flókið að rata rétt við höfuðborgina. (Vegir TF5 og TF2.)

Alcampo Mall er ein stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar en hún er á milli Santa Cruz og La Laguna. Þar fæst næstum allt og á frábæru verði, t.d. raftæki, ritföng, föt og leikföng, ásamt H&M, Zara, Stradivarius, Bershka, Mango og mörgum fleirum. Alcampo matvöruverslunin er sú stærsta á eyjunni og ódýr. Opið til 9 á kvöldin.
Útivistarvörur – La Laguna
Decathlon íþróttavöruverslunin er beint á móti Alcampo (þarf að aka á milli). Þar fæst allt fyrir íþróttir og útilegu. Þar er hægt að ná sér í gönguskó og búnað fyrir fjallgöngur, ef ykkur langar skyndilega að kanna fjöllin betur.
Við hliðina á Alcampo Mall eru Toys“R“Us og C&A. Hinumegin við Alcampo Mall er Leroy Merlin, sem er svipuð og Byko og Húsasmiðjan. IKEA er líka á þessu svæði. Það er mjög flott dótabúð rétt hjá IKEA, Nikki Toy Store (Juguetería Nikki).
Það er ein Primark verslun á eyjunni, hún er nálægt miðbænum í Santa Cruz.
El Corte Inglés – Santa Cruz
Rétt hjá tónlistarhúsinu við sjóinn, er spænska keðjan El Corte Inglés. Hún er á hvorki meira né minna en 7 hæðum enda með nánast allt sem þarf fyrir heimili og fjölskyldu. Hér fæst allt frá fatnaði til heimilistækja. Bökunardeildin er efni í sér ferð. Í El Corte Inglés fást líka föt í stórum stærðum. Á 3. hæð er Disney búð og mörg flott barnafatamerki. Það er veitingastaður á efstu hæðinni og matvara og bílastæði í kjallaranum. Opið alla daga frá 10-10. Hér er listi yfir vörumerki í El Corte Inglés.

Centro Comercial Carrefour

Verslunarmiðstöðin Centro Comercial Carrefour (Anaza) er á nokkrum hæðum. Meðal verslana eru fatabúðir, íþróttabúðir og dótabúð. H&M, Nike, Disney Store, Intersport, Zara, Bershka, Springfield, Women´s secret, Herb Shop. Hér er hægt að skoða vöruflokka til að sjá lista yfir verslanir og þjónustu. Listinn er á spænsku. Til dæmis eru fataverslanir undir MODA og leikföng INFANTIL.
Húsgögn og heimili
Það eru margar verslanir sem selja húsgögn, garðhúsgögn eða smávöru fyrir heimilið. Þær vinsælustu eru til dæmis Leroy Merlin (Adeje og La Laguna), Chafiras, Ikea (Santa Cruz), og Jysk (Rúmfatalagerinn, Adeje, Santa Cruz, og Puerto de la Cruz). Önnur húsgagnaverslun er Conforama, (við hraðbrautina fyrir ofan Golf del Sur-golfvöllinn). Einnig Nomi í Fañabé (Adeje), og Decor Internacional (Adeje, La Orotava, og Santa Cruz).
Í Santa Cruz er Jysk í sömu verslunarmiðstöð og Carrefour, Disney búðin, og H&M.
Heimilistæki, sjónvörp, þvottavélar, húsgögn og húsmunir fást meðal annars í Leroy Merlin, Conforama, og Chafiras. Og allt fyrir viðhald heimilisins, (rafmagnsvörur gólfefni, málning, verkfæri og þess háttar) fæst í Leroy Merlin, sem er svipuð verslun og Byko og Húsasmiðjan.
Ikea er í höfuðborginni Santa Cruz.
Puerto de la Cruz & Los Realejos
Það eru verslanir af öllum stærðum og gerðum í Puerto de la Cruz. Þær eru víða í miðbænum og líka við hraðbrautina sem liggur á milli La Orotava og Los Realejos. Alcampo Mall er verslunarmiðstöð með flestum af sömu búðum og eru í Alcampo Mall í Santa Cruz. Jysk og Leroy Merlin eru báðar staðsettar við hraðbrautina fyrir ofan Puerto de la Cruz.
(Fyrirtækin hafa ekki greitt fyrir auglýsingar eða kynningar hér á síðunni.)