Santa Cruz – Höfuðborgin

Santa Cruz – Höfuðborgin
Höfuðborg Tenerife er Santa Cruz

Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett á norðausturhluta eyjunnar. Íbúar eru um 207 þúsund. Við mælum með að fara í göngutúr eftir aðalverslunargötunni Calle del Castillo og koma sér svo vel fyrir á útiveitingastað og skoða mannlífið eða skella sér á hvítu ströndina Las Teresitas (sandurinn var fluttur inn frá Sahara-eyðimörkinni). Áhugaverðir staðir eru meðal annars Plaza de España eða spænska torgið og tónlistarhúsið Auditorio de Tenerife

Plaza de España
Bæjarlífið í Santa Cruz

Frá suður til norður

Það tekur ekki nema um klukkustund að keyra norður frá Adeje og Amerísku ströndinni. Til Puerto de la Cruz tekur ferðin um klukkustund og um 45 mínútur til höfuðborgarinnar Santa Cruz. Það má samt gera ráð fyrir umferðartöfum við höfuðborgina og ferðamannasvæðið.

Að komast inn og út úr borginni getur verið flókið svo kynnið ykkur vel leiðina (næst borginni), númer fráreina o.þ.h. ef þið eruð ekki með GPS tæki. (Vegir TF5 og TF2.)

Fyrir fólk sem kýs að keyra ekki sjálft, er boðið upp á skoðunarferðir og strætóferðir. Íslensku ferðaskrifstofurnar eru með íslenska fararstjóra og einnig Tenerife ferðir.

Auditorio de Tenerife

Viðburðir

Það er mjög vinsælt að fara í verslunarferð til Santa Cruz en nánar er fjallað um það í hlutanum um verslanir. Ef þið eruð á Tenerife í febrúar og langar í einstaka upplifun, þá er ómissandi að taka þátt í kjötkveðjuhátíðinni eða karnivalinu, Carnaval de Santa Cruz sem er annað stærsta karnival í heimi á eftir Rio de Janeiro. Meira um hátíðina hér.

Einstakt útsýni yfir Atlantshafið frá tónlistarhúsinu

Teresitas-ströndin

Við höfuðborg Santa Cruz er ein stærsta strönd Tenerife, Teresitas. Hún er sérstök fyrir hvíta litinn. Þegar svæðið var byggt upp var fluttur inn sandur frá Sahara-eyðimörkinni í Afríku.

Teresitas-ströndin fyrir og eftir innflutning á Sahara-sandi. (Mynd Islas Canarias).