El Teide-þjóðgarðurinn
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/IMG_6360_el_teide_thjodgardur_eldfjall_tenerife_volcano-1000-2.jpg?resize=640%2C426)
El Teide þjóðgarðurinn á miðri eyjunni er á heimsminjaskrá UNESCO. Þangað koma um 3 milljónir ferðamanna á ári. Það er gott að plana hálfsdags- eða dagsferð þangað í bílaleigubíl eða rútu og munið eftir að taka með nesti, vatn og sólarvörn!
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/IMG_6357-2_el_teide_eldfjallid_tenerife_biltur_upp_a_fjall_utsynisstadir_tenerife_kanarieyjar-1024x683.jpg?resize=640%2C427)
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/IMG_6432-2_tenerife_grillsvaedi_eldfjalli_teide_tene_grilla_utivera_biltur_skodunarferdir.jpg?resize=640%2C499)
Það er grillsvæði í þjóðgarðinum og munið að taka með ykkur kol og grilláhöld ef þið ætlið að grilla. Það eru borð og bekkir víðsvegar á staðnum.
El Teide er 3. stærsta eldfjall heims og er 3.718 metra hátt. Það var hærra en féll ofan í sjálft sig í jarðskjálfta fyrir þúsundum ára, sem útskýrir undarlegt útlit toppsins. El Teide var virkt frá 1704-1908 en það er enn flokkað sem virkt eldfjall. El Teide er hæsti punktur Spánar og hæsti punktur yfir sjávarmáli af öllum eyjum í Atlantshafi. Landslagið er ótrúlega líkt Íslandi (á trjálausa svæðinu) enda báðar eldfjallaeyjar.
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/Að-keyra-á-Tenerife-El-Teide.jpg?resize=640%2C427)
Nokkrir vegir liggja upp að þjóðgarðinum, meðal annars frá Arona-svæðinu og þaðan er um 90 mínútna akstur. Vegurinn er hlykkjóttur en það er hægt að stoppa á mörgum stöðum og fá sér ferskt loft ef einhver finnur fyrir bílveiki eða þreytu. Það eru vegrið og vegirnir eru góðir. Það getur verið kalt uppi í fjallinu svo takið með ykkur peysu eða jakka til öryggis, jafnvel þó þið ætlið ekki að labba mikið. Loftið er um 50% þynnra en við sjóinn svo fólki með hjarta- og öndunarfærasjúkdóma er ráðlagt að ganga ekki langt þarna. Í þjóðgarðinum er líka annað hæsta eldfjall Kanaríeyja, Pico Viejo, 3.135 metra hátt.
Það er algjörlega bannað að kveikja eld á opnu svæði eða henda sígarettustubbum frá sér. Það er ekki langt síðan skógareldar geisuðu hér en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá sígarettu.
Milli kl. 9-16 er hægt að fara upp á Teide í kláf (Teleférico). Ferðin tekur um 8 mínútur og það er stoppað 170 metra frá toppnum en þaðan er magnað útsýni yfir eyjuna.
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/El_Teide_gonguferdir_fjallgongur_tenerife_utivist_IMG_6446-2-1024x683.jpg?resize=640%2C427)
Þetta er mjög vinsælt göngusvæði og fyrir þau sem eru að plana gönguferð er t.d. hægt að hefja hana frá eina hótelinu í þjóðgarðinum, Parador de Las Cañadas del Teide. Athugið samt að ef þið viljið fara alla leið á toppinn þarf að fá leyfi hjá Parque Nacional del Teide. Fararstjórar geta líka gefið nánari upplýsingar.
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/IMG_6436-El-Teide-eldfjallið-Tenerife-Los-Roques-1.jpg?resize=391%2C586)
Hinumegin við veginn frá hótelinu er Los Roques de García-kletturinn sem er vinsælt að stoppa við vegna undarlegrar lögunar hans. Kletturinn hefur mótast svona í veðri og vindum.
El Teide er talið vera virkt eldfjall. Það er í sama flokki og Vesúvíus og Etna vegna tegundar gosa og nálægðar við byggð. Síðasta gos á svæðinu var í Montana Chinyero árið 1909.
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/IMG_6387-2_El-Teide-Tenerife-um-vetur.jpg?resize=640%2C427)
Þegar Kristófer Kólumbus sigldi fram hjá Tenerife á ferð sinni að uppgötva Nýja Heiminn árið 1492, skýrði hann frá „miklum eldum í Orotava dalnum.“ Þetta var túlkað þannig að hann hefði orðið vitni að eldgosi þar. Gögn frá svæðinu sýna að þetta ár var gos í Boca Cangrejo-gígnum en ekki Orotava-dalnum.
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2019/11/IMG_6448-2_el_teide_tenerife_volcano_eldfjall_thjodgardur_skodunarferdir_tene.jpg?resize=640%2C426)