Fiesta de la Virgen de Candelaria
![](https://i0.wp.com/tenerife.is/wp-content/uploads/2020/01/IMG_7139_Tenerife_Candelaria_Madonna_styttan-682x1024.jpg?resize=408%2C612)
Hátíðin Virgen de Candelaria eða Meyjan frá Candelaria er haldin 15. ágúst ár hvert. Hátíðin er í anda frumbyggjanna og íbúar Tenerife koma gjarnan til bæjarins daginn áður og eyða nóttinni á stígunum sem liggja að bænum.
Myndin hér að ofan er tekin inni í basilíkunni í Candelaria. Hún sýnir styttuna af Maríu mey með Jesúbarnið. Í hægri hönd hennar er kerti (candela) sem bærinn dregur nafn sitt af. Hér er hægt að lesa meira um sögu Candelaria og hvernig styttan kom til Tenerife.
Hátíðin í ágúst er til heiðurs verndardýrlingi eyjunnar, Meyjunnar frá Candelaria, en hátíðin 2. febrúar er hreinsunardagur Maríu Meyjar.