Uppskeruhátíð San Andrés
Í lok nóvember hvert ár, er hátíðin La Fiesta de San Andrés. Þar sýnir víngerðarfólk afrakstur sinn með matarveislu og vínsmökkun.
Hátíðin fer fram í nokkrum bæjum á Norður-Tenerife. Þar á meðal í Puerto de la Cruz, La Orotava, Icod de Los Vinos, San Juan de La Rambla, og La Guancha.
Bæir sem hátíðin er venjulega haldin í eiga það sameiginlegt að hafa brattar brekkur, svo þátttakendur (oftast strákar og ungir karlar) geti rennt sér niður götur á vaxbornum trébrettum. Það er vísan í það þegar víntunnur voru dregnar eftir götunum þegar víngerð var lokið.