Blómahátíðin Corpus Christi
Hátíðin Corpus Christi er haldin í lok maí eða byrjun júní ár hvert, fyrsta sunnudag eftir hvítasunnu. Þá er gamli bærinn í La Orotava „teppalagður” með blómum og listaverkum úr sandi. Þetta krefst mikils undirbúnings og nákvæmni og útkoman er stórkostleg. Það eru að stórum hluta karlmenn sem eiga heiðurinn af skreytingunum. Þjóðdansar eru líka sýndir.
Hátíðin 2024 er 30. maí
Listaverk úr sandi eru á torginu fyrir framan ráðhúsið í La Orotava. Sandurinn er úr El Teide-þjóðgarðinum og fjöldi listamanna sér um gerð sandlistaverkanna.