Flug til Tenerife

Fjölmargir hafa verið að velta fyrir sér hvaða flugfélög komi til með að fljúga á milli Íslands og Tenerife eftir allar breytingarnar sem hafa orðið á ferðaiðnaðinum síðastliðið ár. Hér eru þeir rekstraraðilar sem Íslendingar geta ferðast með til Tenerife á þessu ári.

Fólk í fjallgöngu á Tenerife

Pakkaferðir

Ferðaskrifstofurnar Heimsferðir, Plúsferðir, VITA, og Úrval Útsýn bjóða allar upp á pakkaferðir til Tenerife. Verðin eru fjölbreytt og fara almennt eftir verðflokki þess hótels sem valið er. Flestar ferðaskrifstofurnar bjóða einnig stök flugsæti, fyrir þau sem vilja ferðast til Tenerife á eigin vegum.

Nýjung í beinu flugi til Tenerife

Í ársbyrjun 2022 fór Niceair í loftið. Þetta flugfélag flýgur beint til Tenerife frá höfuðstað Norðurlands, Akureyri, enda kemur nafnið Niceair þaðan (North-Iceland).

Vorið 2021 hóf Icelandair beint flug til Tenerife í fyrsta sinn. Áður hafði félagið tekið þátt í leiguflugi fyrir aðra. Fyrsta áætlunarflug Icelandair til Tenerife fór í loftið þann 1. maí 2021. Flogið er tvisvar í viku milli Íslands og Tenerife.

Nýja flugfélagið Play hóf einnig beint flug til Tenerife 2021. Play flýgur til Tenerife tvisvar í viku og stundum aukaferð á sunnudögum.

Hjá ferðaskrifstofum er yfirleitt líka í boði að kaupa stök flugsæti.

Norska flugfélagið Norwegian Air hóf beint flug til Tenerife frá Íslandi í lok október 2019 en vegna Covid-19 er óljóst hvenær verður aftur hægt að fljúga með þeim til Tenerife.

Flugtími og verð á flugi

Það tekur rúma 5 tíma að fljúga á milli Íslands og Tenerife.

Í þessari grein er hægt að sjá dæmi um hvað kostar að fljúga til Tenerife.

Og hér eru reglur um QR-kóða og bólusetningu, fyrir fólk sem er að fara til Tenerife og Kanaríeyja.

Ferðast á eigin vegum

Til að leita að öðrum flugfélögum og hótelum mælum við með að nota leitarvélina Booking, sem er á íslensku.

Booking.com

Hér geturðu skoðað úrvalið af hótelum og íbúðum, hvort sem það er á Tenerife, Alicante eða víðar.

Hvar er best að leita að íbúð í langtímaleigu á Tenerife eða Kanaríeyjum?

Suður eða norður eða einhvers staðar þar á milli. Það getur verið erfitt að velja rétta staðinn.