Matvara

Maturinn á Tenerife er almennt mjög góður og við mælum með að prófa hefðbundna spænska rétti eins og paellu, tapas, og sósurnar mojo rojo og mojo verde. Og kanareyskan mat eins og papas arrugadas (hrukkóttar kartöflur), gofio, ropa vieja, og almogrote, mauk sem er gert úr geitaosti og borðað með tuc-kexi eða brauði. 

Í matvöruverslunum er mikið úrval af ostum og við hvetjum fólk til að prófa hinar ýmsu gerðir af geitaosti. Og í stað þess að nota ávaxtasultu með, eins og við Íslendingar gerum vanalega, þá er gott að nota hunang

Við bíðum spennt eftir að íslensku búðirnar fari að flytja inn dverg-bananana frá Tenerife.

Hvar er best að versla í matinn?

Á ferðamannasvæðinu er ódýrast að versla í Mercadona og HiperDino. Fyrir norðan eru það Alcampo og Mercadona. Aðrar matvöruverslanir eru t.d. Carrefour, Lidl og El Corte Inglés. Matvara er mjög ódýr miðað við á Íslandi. En minni munur getur verið á innfluttum vörum eins og kexi og morgunkorni. Þess ber þó að geta að laun eru mikið lægri á Kanaríeyjum (og Spáni) en á Íslandi og það hefur áhrif á verðlagið.

Áfengi er selt í matvörubúðum.

Það er hægt að versla í matinn á netinu og fá sent heim. Til dæmis er Hiperdino með netverslun, en hún er í augnablikinu eingöngu á spænsku. Mercadona er með netverslun sem er ekki enn orðin virk fyrir Kanaríeyjar.

Fyrir þau ykkar sem verðið í íbúð og eldið sjálf þá er hægt að áætla matarkostnaðinn á síðunni verðdæmi-matur og fleira. Grænmeti og ávextir eru ótrúlega fersk og ekkert í líkingu við það sem er innflutt til Íslands, enda er frábær aðstaða til ræktunar á eyjunni árið um kring. Bananar eru meðal þess sem er ræktað á Tenerife. Þeir eru litlir en bragðgóðir. Fólk þarf stundum sjálft að vigta grænmeti og ávexti inni í grænmetisdeildinni en stundum er það gert við afgreiðslukassana. Við mælum líka með að kaupa grænmeti og ávexti beint af bónda, á mörkuðum.

Gott ráð: Það getur komið sér vel að hafa orðabók með í búðina!

Raftæki, leikföng og fleira

Alcampo og Mercadona eru með stærstu matvörubúðunum á Tenerife. Þar er líka hagstætt að versla í matinn. Mercadona og HiperDino eru víða á ferðamannastöðunum en Alcampo er í stærri verslunarmiðstöðvum (Santa Cruz/La Laguna, Los Realejos og La Orotava.

Það er mjög fjölbreytt vöruúrval í Alcampo. Fyrir utan matvöru er hægt að kaupa raftæki, leikföng, ritföng, fatnað og margt fleira. Svolítið eins og Costco eða stærri útgáfa af Hagkaup.

Má drekka kranavatnið?

Kranavatn er yfirleitt ekki drukkið nema gegnum þar til gerða síu en það er allt í lagi að bursta tennurnar með því.

Í staðinn fyrir að drekka kranavatn er mælt með að fólk kaupi vatn í flöskum. Best er að kaupa vatn í 6-8 lítra brúsum og nota það til að fylla á litlar flöskur áður en haldið er út í daginn. Þannig sparast bæði evrur og plast. Fontvella-vatnið er til dæmis mjög gott, en það bragðast líkt og íslenskt vatn. Munið að skoða klórinnihald þegar vatnsflöskur eru keyptar.

Þegar þið farið út að borða þá er alveg óhætt að drekka klaka sem eru settir í drykkina.

Mikið úrval af sérfæði

Það er vel hægt að fá valkvíða yfir 30 gerðum af brauði. Spánverjar eru mikil brauðþjóð og borða helst brauð með öllum mat.

Og það getur tekið tíma að finna einfaldar vörur eins og smjör og ost sem líkist því sem fólk er vant að heiman.

Eitt af því sem börnin hafa gaman af að prófa er skorpulaust brauð, sem er eitt af því sem er hægt að kaupa tilbúið.

Fólk sem er á sérfæði þarf ekki að örvænta því það er fjölbreytt úrval af mat fyrir það. Munið bara að skrifa hjá ykkur spænsku heitin; lífrænt (egológicos), glútenlaust (sin gluten) og laktósafrítt (sin lactosa).

Í spænsku búðunum er yfirleitt ekkert stress. Ef fólk á eftir að setja mikið í poka (bolsa) þegar komið er að næstu manneskju, þá fær það einfaldlega aðstoð án þess að biðja um það.