Umhverfisvernd
Endurvinnslutunnur á Tenerife eru öðruvísi en á Íslandi. Hér er listi yfir liti á tunnum og hvað má fara í hverja.
- Græna kúpta tunnan – Glerflöskur, glerkrukkur, ílát. (Ekki málmlok.)
- Gula tunnan – Plastflöskur, plastumbúðir, niðursuðudósir, áldósir, Tetra pak, pokar sem eru bæði úr pappa og plasti.
- Bláa tunnan – Pappír.
- Skærgræna tunnan – Fatnaður og skór.
Plokk
Ef ykkur fer að leiðast í fríinu þá er alltaf hægt að skella sér í göngutúr (eða sjóinn) og grípa með sér poka til að plokka rusl.
Til að kolefnisjafna flug er hægt að fara á þessa heimasíðu: Kolviður