Öryggi & neyðartilvik

Öryggi & neyðartilvik

Neyðarnúmer er 112

Aðstoð við Íslendinga erlendis

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins er með símavakt allan sólarhringinn, í síma +354 – 545-0-112. Það er líka hægt að senda þeim póst á hjalp@utn.is.

Læknisþjónusta og bráðamóttaka

Spítalar og heilbrigðisstofnanir sem ríkið rekur, samþykkja ES-kortið (Evrópska sjúkratryggingakortið). Einkaspítalar geta verið dýrir, svo það getur skipt máli að fara á réttan stað. Ef um neyðartilfelli er að ræða, hringið í 112.

Þau sem hafa þurft að leita til lækna á Tenerife hafa oft lent í tungumálaörðugleikum. Það er ekki alltaf hægt að treysta á að finna lækni sem talar annað tungumál en spænsku.

Hospital del Sur de Tenerife fyrir ofan Amerísku ströndina. Sjúkrahús, bráðamóttaka, opið allan sólarhringinn. Sími +34 922 17 47 56.

Íslenskur hjúkrunarfræðingur

Á Tenerife er íslenskur hjúkrunarfræðingur sem hægt er að leita til, Svana Andrea. Hún er með Facebook-síðuna Hjúkrunarfræðingur á Tenerife. Síminn hennar er (+354) 857-4433. Hún tekur gjald fyrir þjónustuna.

Læknar á Amerísku ströndinni og Los Cristianos

Þessar læknastofur eru meðal þeirra sem eru með enskumælandi lækna. Þær eru á aðal ferðamannasvæðinu, þ.e. Amerísku ströndinni, Los Cristianos, og Adeje. Í neyðartilvikum ætti fólk samt að hringja í 112.

Þetta eru nokkrar af mörgum læknastofum á svæðinu.

TEHC (The European Health Centre) – Avenida Rafael Puig Lluvina 22, Playa De Las Américas, sími +34 922 716 682. Beint á móti Santander Bank. Í sömu götu og Las Palmeras hótelið og HD Parque Cristobal. Upplýsingar um opnunartíma og þjónustu er að finna á heimasíðu þeirra: doctortehc.com.

Clinica Vintersol – Humlegarden SL – C. Nordica 1, Los Cristianos. Sími +34 922 777 900.

Læknar og tannlæknar í Fañabe og Adeje

Í Fañabe Plaza verslunarmiðstöðinni eru bæði læknastofur og tannlæknar.

Læknastofan Costa Adeje Medical er í síma +34 922 17 34 30. Læknastofan er á þremur stöðum í Adeje, meðal annars í Fañabe Plaza og svo er Costa Adeje Medical El Duque á móti Oasis del Duque, rétt hjá Plaza del Duque. Á heimasíðu Costa Adeje Medical er listi yfir staðsetningar og fjölbreytta þjónustu sem þau bjóða upp á: costaadejemedical.com.

Það er sólarhringsþjónusta á tannlæknastofunni í Fañabe Plaza, (Clínica dental). Tímapantanir í síma+34 922 714 225. Neyðarnúmer tannlækna er +34 687 744 225. Nánari upplýsingar um stofurnar er að finna á heimasíðu Fañabe Plaza.

Læknastofur Family Doctors eru á þremur stöðum á Adeje-svæðinu. Þær þjónusta sérstaklega ferðamenn og bjóða einnig upp á heimavitjanir. Sími +34 922 925 851. Á heimasíðu þeirra, familydoctors.es, er hægt að sjá staðsetningar, opnunartíma og þjónustu í boði.


Þjófnaður úr ferðatöskum

Mikið hefur verið rætt um þjófnað úr töskum flugfarþega. Þetta á ekki eingöngu við um flug til og frá Tenerife, heldur hefur þetta verið vandamál víða um heim. Í desember 2023 var þjófagengi handtekið á Tenerife fyrir þjófnað úr töskum. Það voru aðallega flugvallarstarfsmenn á TFS-flugvellinum. Samt sem áður er gott að passa vel upp á hvað er sett í almennan farangur og hafa verðmæti í handfarangri.

Gætið þess að setja engin verðmæti í ferðatöskur. Það skiptir engu máli þótt taskan sé læst. Sumir hafa vafið töskurnar með plasti og á flugvöllunum eru oft sérstakar plöstunarvélar til þess. En það er augljóslega ekki umhverfisvænt.

Hringtorg, akstur og ökuskírteini

Íslendingar (og þá sérstaklega þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu), gætu fengið menningarsjokk yfir tillitsseminni í umferðinni á Tenerife. Það er nánast alltaf stoppað fyrir fólki á gangbrautum og mikið tillit tekið til gangandi vegfarenda. Á hraðbrautunum þekkja bílstjórar muninn á hægri og vinstri akrein, og nota þá vinstri til framúraksturs. Athugið að þegar ekið er í gegnum hringtorg á ytri hringurinn réttinn, öfugt við íslensku umferðarregluna.

Bílstjórar þurfa að muna að hafa bæði vegabréf og alþjóðlegt ökuskírteini á sér. Ef þið eigið bara þetta gamla bleika þá borgar sig að sækja um alþjóðlega skírteinið hjá sýslumanni. Bílstjórar þurfa líka að passa að vera í réttum skóm, því það er bannað að aka bíl í sandölum eða skóm sem eru opnir að aftan.

Greiðslukort og verslanir

Hér gilda sömu almennu reglur og á Íslandi. Það er allt í lagi að nota eigið veski en ekki skilja verðmæti eftir, t.d. á borði veitingastaða meðan þið skreppið frá.

Þegar borgað er með kortiALDREI láta kortið úr augsýn. Ef afgreiðslumaður/kona vill fara með kortið á bak við og þykist vera með bilaðan posa eða eitthvað álíka, fáið þá að fara með eða segið nei. Farið frekar í hraðbanka. Ekki gefa eftir í svona tilvikum. 

Góð regla er að vera ekki með mikið reiðufé á sér og ekki nema 1 greiðslukort, helst með lágri inneign. Við höfum flest gott aðgengi að netbönkum í símanum svo það ætti að vera lítið mál að skammta sér dag- eða vikupeninga á greiðslukortin.

Raftækjasvik

Það hefur lengi verið varað við því að versla raftæki eða dýra hluti af smásölum, sem eru með litlar verslanir hér og þar á svæðinu. Full ástæða er fyrir því að fararstjórar og ferðamenn hafa varað við þessu. Margsinnis hefur komið fyrir að ef fólk freistast til að kaupa t.d. myndavél eða síma þá getur eitthvað allt annað verið í kassanum þegar heim er komið. Þess í stað er hægt að fara í viðurkenndar raftækjaverslanir í verslunarmiðstöðvunum sem er öruggt að versla af, til dæmis í Alcampo, Gran Sur og El Corte Inglés.

Öryggi á ströndinni

Passið vel upp á hlutina ykkar á ströndinni. Þetta vitum við nú flest en samt sem áður sést stundum til fólks á sundfötunum einum saman á lögreglustöðinni að tilkynna þjófnað. Til að fyrirbyggja þjófnað á ströndinni er best að vera með vatnshelt hulstur eða tóman brúsa, t.d. undan sólarvörn sem búið er að hreinsa að innan. Þannig hulstur er hægt að nota undir lykla, peninga og þess háttar. Það er líka hægt að nota tómt ílát undan blautþurrkum. Skiljið vegabréfin eftir á hótelinu (bílstjórinn þarf samt að hafa sitt vegabréf), og forðist að hafa mörg greiðslukort á ykkur í einu.

Öryggisfánar

  • Rauður fáni: Bannað að fara í sjóinn. Getur fengið sekt ef þú ferð út í.
  • Gulur fáni: Sýnið aðgát.
  • Grænn fáni: Öruggt að fara í sjóinn, gott veður.

Síðustu árin hefur sérstaklega verið varað við Veronicas-svæðinu á Amerísku ströndinni.

Öryggi í skemmtigörðum

Það er alveg ómissandi að skella sér í vatnsrennibrautagarð. Í þeim (og flestum skemmtigörðum) er hægt að leigja geymsluskápa fyrir allt sem má ekki blotna. Geymsluskáparnir eru t.d. inni hjá búningsklefunum og eru merktir á korti eða leiðarvísi sem fylgir garðinum. Svo þegar pása er tekin á leiknum, er einfalt að sækja sér pening eða kort áður en farið er að borða. Eftir mat eða sólbað er því svo skilað aftur í skápinn fyrir næstu törn.

Lögreglan

Lögreglan er vel sýnileg og það eru nokkrar lögreglustöðvar á ferðamannasvæðunum. Þar er yfirleitt enskumælandi lögreglumaður á vakt. En fyrir utan helstu ferðamannastaðina gæti þurft að hafa túlk með, nema þið talið spænsku.

Policía Nacional. Við Amerísku ströndina er lögreglan rétt hjá Siam Mall, en hinum megin við hraðbrautina. Á Adeje-svæðinu er lögreglan ofan við hraðbrautina, á svipuðum slóðum og golfvöllurinn.

Á myndinni má sjá lögreglumenn svæðisins, Policía Local, en ríkislögreglan er Policía Nacional. Það er einnig algengt að lögregla sé óeinkennisklædd á vakt.

Ræðismaður Íslands

Ræðismaður Íslands á Kanaríeyjum er með aðsetur á Las Palmas á Gran Canaria (Kanarí), sem er við hliðina á Tenerife. Það er hægt að fara á milli eyjanna með ferju, sem siglir til og frá höfninni í Los Cristianos (gamla bænum). Heimilisfangið er: Avenida de Canarias 22, Edificio Bitacora, Torre Norte, ES-35002 Las Palmas de Gran Canaria.
Netfang: canaryislands@icelandconsulate.es – Hér er heimasíða ræðismannsins á Kanaríeyjum.
Sími: Landsnúmer 34 – (928) 365 870.

Vegabréf

Athugið að það þarf að hafa vegabréf á sér þegar farið er á milli eyjanna þótt þær tilheyri allar Kanaríeyjaklasanum. Ef þið hafið týnt vegabréfi ykkar þarf að fara á næstu lögreglustöð ríkislögreglunnar. Hér eru ítarlegar upplýsingar um hvað á að gera ef maður lendir í því að týna vegabréfinu á Tenerife.

Á vef Island.is eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir Íslendinga á ferðalagi erlendis. Til dæmis um ferðalög með börn þegar foreldrar eru með sameiginlegt forræði; ökuréttindi; tollfrjálsar vörur; endurgreiðslu á virðisaukaskatti; réttindi flugfarþega, þar með talið hreyfihamlaðra og fatlaðra.