Ferðast með ungbörn
Þurrmjólk, bleyjur og aðrar ungbarnavörur
Margir foreldrar hafa lent í vandræðum með að finna þurrmjólk. Sum apótek á ferðamannasvæðinu selja þurrmjólkina frá Nan (Nestle). Nan fæst líka í matvöruverslun Alcampo og öðrum matvöruverslunum. Alcampo er líka með mjög gott úrval af ungbarnavörum. Þar fæst meðal annars Nan pro, lífræn Hipp þurrmjólk, og fleiri gerðir. Þurrmjólk er leches infantiles á spænsku og bleyjur pañales.
Þarna er líka listi yfir bleyjur og stærðir; Pañales talla (stærð) 1-7. Athugið að Pampers-bleyjur heita Dodot á Spáni. Stærri matvöruverslanir eru oft með bleyjur undir merki verslunarinnar, eins og Mercadona, SuperDino, Lidl og fleiri.
Leigja barnastóla, kerrur o.fl.
Það getur verið þægilegt að fá vana manneskju til að skutla sér á milli staða og enn betra ef hún talar íslensku. Rósa Tenerife býður upp á skutlþjónustu og bílstólaleigu. Þið finnið hana á Facebook.
Það er hægt að leigja kerrur, barnabílstóla, burðarpoka, ferðarúm, ömmustóla og fleiri barnagræjur hjá tækjaleigunni Travel4Baby (hét áður Hire4Baby)og fá afhent á flugvellinum eða hótelinu. Í lok ferðarinnar eru leigðir munir síðan einfaldlega sóttir til ykkar eftir samkomulagi. Það er bæði hægt að greiða fyrir þjónustuna fyrirfram eða borga bílstjóranum við afhendingu. Það er boðið upp á að leigja samdægurs en þá þarf að hringja í símanúmerið sem er gefið upp á heimasíðunni þeirra. Travel4Baby er bæði á Tenerife og Kanarí. Margar íslenskar fjölskyldur hafa nýtt sér báðar þessar þjónustur og mæla 100% með þeim.
Brjóstagjöf
Mæður með börn á brjósti ættu að gefa oftar, þar sem börnin verða þyrst í hitanum. Samkvæmt brjóstagjafaráðgjafa er það útbreiddur misskilningur að það þurfi að gefa ungbörnum vatn samhliða brjóstagjöf en það er ekki rétt.