Siam Park

Siam Park

Það er engin tilviljun að Siam Park vatnsrennibrautagarðurinn er hér fyrstur á listanum, enda hefur hann verið valinn sá besti í heimi undanfarin ár. Siam Park er líka á frábærum stað, rétt fyrir ofan hraðbrautina hjá Amerísku ströndinni.

Ein af barnabrautunum

Við mælum með að mæta snemma til að ná að fara í flestar brautirnar (og líka til að ná örugglega geymsluskáp). Það er hægt að leigja handklæði á staðnum og þarna eru nokkrir veitingastaðir. Börn undir 16 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum. Það er frábær öryggisgæsla í garðinum og laugunum.

Best er að kaupa miða fyrirfram en það er líka miðasala við innganginn. Þar eru bæði hraðbankar og posar. Þegar miðar eru keyptir á netinu þarf að mæta með þá útprentaða.

Hvað kostar í Siam Park?

Hér er hægt að skoða verð og kaupa miða í Siam Park. Þar er líka hægt að sjá hvernig miðar og tilboð eru í gangi. Venjulegt verð fyrir fullorðna eru 42 evrur, fyrir 3-11 ára börn 30 evrur, frítt fyrir börn sem eru 2 ára og yngri. Núna eru nokkrar gerðir af miðum í boði: VIP, Premium, og Kampavínsklúbburinn Champagne Club. (*Birt með fyrirvara um breytingar.)

Tvíburamiðar — Afsláttur í Siam + Loro

Ef þið ætlið líka í Loro Parque dýragarðinn þá er hægt að kaupa „tvíburamiða“ (twin ticket) í báða garðana með afslætti

Það eru verð fyrir fullorðna (12-99 ára) og 3-11 ára börn. (Það er frítt fyrir 2ja ára og yngri.)

Við innganginn er hægt að fá kort af Siam Park

Tower of Power

Foreldrum sem horfa á unglingana sína fara í þessa er ráðlagt að fá sér sæti á meðan

Tower of Power er ein svakalegasta rennibrautin á Kanaríeyjum. Hún er 28 metra há og 76 metra löng (Hallgrímskirkja er 74,5). Fólk getur náð allt að 80 km hraða. Ferðinni lýkur með því að renna í gegnum rör sem liggur undir hákarlalaug. Það er 14 ára aldurstakmark í þessa.

Svæði fyrir yngstu börnin

Þarna er frábært svæði sem er lokað af fyrir yngstu börnin, The Lost City (týnda borgin). Eldri börn fá ekki að fara inn á það, enda er nóg af öðrum brautum fyrir þau. Athugið að það eru skilti við allar brautir sem sýna aldurs- og/eða hæðartakmörk. Börn undir 16 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum. Það er líka tekið fram ef brautirnar henta ekki fólki með hjarta- eða bakvandamál, til að gæta fyllsta öryggis.

Mikil gæsla er í garðinum og hann er mjög snyrtilegur. 

Öldulaugin

Á svæðinu hjá veitingastöðunum er risastór öldulaug. Því nær sem þú ferð upptökunum á öldunum, því meiri líkur eru á að þær nái að fella þig. Það eru sundlaugaverðir í og við öldulaugina, eins og við öll svæðin.

Öldulaugin

Jafnvel smábörn geta leikið sér í öldulauginni næst „ströndinni“ (í umsjón fullorðinna auðvitað). Þar eru líka sólbekkir þar sem er hægt að slaka á eftir daginn eða á milli brauta. Það eru veitingastaðir við ströndina.

Þess má geta að Siam Park býður stundum upp á 5 vikna námskeið fyrir fólk sem vill gerast sundlaugaverðir. Nánari upplýsingar á heimasíðu Siam Park (undir recruitment).

Vatnsrennibrautagarður
Hér verður ekki aftur snúið