Karnivalið á Tenerife 2022

Carnaval de Santa Cruz er annað stærsta karnival í heimi á eftir Rio de Janeiro. Karnivalið hefur ekki verið haldið frá 2020, og nú lítur út fyrir að það verði haldið í júní 2022. 2019 var metþátttaka þegar 400.000 gestir skemmtu sér í miðbæ Santa Cruz. Dagsetningar fyrir hvenær karnivalið verður haldið eru komnar á karnival-síðu Tenerife.is.
Hér geturðu lesið meira um sögu karnivalsins á Tenerife, skoðað myndir og fleira.

Karnivalsafnið
Nú er hægt að fræðast betur um sögu karnivalsins á Tenerife, skoða búninga og sjá hvernig þeir hafa tekið breytingum í gegnum tíðina. Búningur karnivaldrottningarinnar er líka til sýnis. Nánari upplýsingar um karnivalsafnið eru hér.